Drónaárás hæfði iðnaðarfyrirtæki skammt frá Moskvu

Rússnesk stjórnvöld greindu frá því í dag að drónaárás hefði hæft iðnaðarfyrirtæki austan við Moskvu í nótt.Úkraínskir hermenn undirbúa dróna fyrir flugtak.EPA / Maria SenovillaEkki var tilgreint hvers konar starfsemi varð fyrir árásinni en áður hafði Úkraína tilkynnt um drónaárás á stóra olíuhreinsistöð.Héraðsstjóri Nizhny Novgorod-héraðs, þar sem drónaárásin var gerð, segir enn fremur í yfirlýsingu að fleiri en hundrað drónum hafi verið grandað í árásinni. Hann tók fram að enginn virðist hafa slasast í árásinni en að fyrirtækið hafi orðið fyrir miklu tjóni.
Drónaárás hæfði iðnaðarfyrirtæki skammt frá Moskvu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar