Einn látinn og þúsundir misst allt sitt í rigningum á Galapagos

Úrhellisrigning hefur verið á Galapagoseyjum í Austur-Kyrrahafi síðan síðdegis á föstudag. Að minnsta kosti einn hefur látist og tveggja er saknað. Þá hafa þúsundir fjölskyldna neyðst til að yfirgefa heimili sín.Úrkoman er sögð tengjast veðurfyrirbrigðinu El Niño, sem hefur magnað upp rigningar, storma og gróðurelda víða um heim undanfarið.Íbúar á eyjunni Santa Cruz, sem er fjölmennasta eyjan í eyjaklasanum, þurftu að koma eigum sínum hratt í skjól en stórviðrið kom íbúum og yfirvöldum á óvart. EIGA EKKERT EFTIR NEMA FÖTIN „Þetta er í fyrsta skipti sem eitthvað þessu líkt hefur gerst,“ segir Fanny Uribe, borgarstjóri Santa Cruz, í samtali við AFP-fréttaveituna. „Þetta náttúrufyrirbrigði fór virkilega fram úr því sem við gerðum ráð fyrir.“Samkvæmt bráðabirgðatölum sveitarfélagsins á Sant
Einn látinn og þúsundir misst allt sitt í rigningum á Galapagos

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar