Aftur birtir Trump sérkennilega mynd af Grænlandi

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur enn eina ferðina deilt sérkennilegri mynd af Grænlandi á samfélagsmiðli sínum, Truth Social.Enginn texti fylgir myndinni en hún sýnir norðurhvel jarðar með Grænland í miðjunni. Í þetta sinn hefur landinu verið umbreytt í risastóra herstöð með bandaríska fánann dreginn að hún. Danska ríkisútvarpið greinir frá.Í september skrifuðu Grænland, Bandaríkin og Danmörk undir þríhliða samning þar sem sjálfsákvörðunarréttur Grænlands er virtur, sem og réttur danska konungsríkisins.Bandaríkin fá að koma upp tveimur nýjum herstöðvum á landinu og stækka Pituffik-herstöðina. Einnig fá þau að setja Grænland undir Gullhvelfinguna svonefndu, loftvarnarkerfi Bandaríkjanna. Bandaríkin fara þó ekki ein með ákvarðanir um varnir Grænlands, eins og myndin virðist gefa til kynn
Aftur birtir Trump sérkennilega mynd af Grænlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar