Kólumbískir uppreisnarmenn drepnir af venesúelska hernum

Herinn í Venesúela réðist til atlögu gegn kólumbískum vinstrisinnuðum uppreisnarmönnum sem tilheyra Þjóðfrelsishernum ELN (s. Ejército de Liberación Nacional).Venesúelski herinn að störfum skammt frá landamærum Kólumbíu.EPA / Mario CaicedoUppreisnarmennirnir höfðu slegið upp búðum Venesúelamegin við landamærin. Fjöldi manns er sagður hafa látist í árásinni.Þetta er í fyrsta skipti sem herinn í Venesúela ræðst að Þjóðfrelsishernum þegar hann fer yfir landamærin, en landinu var þar til nýlega stjórnað af sósíalistanum Nicolas Maduro. Honum var þó komið frá völdum í janúar þegar Bandaríkin réðust inn í landið og numu Maduro á brott.
Kólumbískir uppreisnarmenn drepnir af venesúelska hernum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar