Ólétt kona skotin til bana í hrekkjavökubúð

Ólétt kona var skotin til bana og sex voru særðir þegar skotum var hleypt af í skammtímaverslun sem selur hrekkjavökuvarning í San Fransisco í Bandaríkjunum á föstudagskvöld. Los Angeles Times greinir frá.Lögreglumenn brugðust við útkalli klukkan 8.30 að staðartíma, eða hálf fjögur um nótt að íslenskum tíma. Margar fjölskyldur voru í búðinni að versla hrekkjavökuvarning á síðustu stundu. SEX KARLMENN SÆRÐIR, ÞRÍR LÍFSHÆTTULEGA Þrír karlmenn, 16, 19 og 32 ára, voru einnig skotnir og eru þeir allir í lífshættu. Annar 23 ára maður særðist einnig alvarlega. Þá voru tveir karlmenn, 18 og 43 ára, meðhöndlaðir vegna sára af völdum byssuskota en þeir voru útskrifaðir af spítala skömmu síðar.Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins en talið er að skotárásin hafi beinst að einhverjum sem stadd
Ólétt kona skotin til bana í hrekkjavökubúð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar