Áfram mótmælt í Evrópu og Molotov-kokteil kastað í lögregluþjón

Ungmenni gripu til mótmæla í tugum þýskra borga í dag. Þau segja pólitíska elítu hunsa áhyggjur þeirra og kalla eftir afsögn Friedrich Merz Þýskalandskanslara. Mótmælin voru skipulögð af hópi sem kallast „GenZ regelt!“ sem þýða mætti sem „Z-kynslóðin sér um þetta!“Hópurinn segir að 120 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælunum sem lögregla segir hafa að mestu verið „mjög friðsæl“.Í Hamborg og Köln beitti lögregla vatnsbyssum á mótmælendur sem köstuðu flugeldum.Einnig var mótmælt í Berlín en mótmælin þar voru ekki skipulögð af „GenZ regelt!“-hópnum. Þar var eggjum og flöskum kastað í lögreglu. MOLOTOV-KOKTEIL KASTAÐ Í LÖGREGLUÞJÓN Í PARÍS Keimlík mótmæli hafa verið á Ítalíu og í Frakklandi síðustu vikur. Í dag hafa hundruð þúsunda Frakka mótmælt lögregluofbeldi og háum framfærslukostnaði
Áfram mótmælt í Evrópu og Molotov-kokteil kastað í lögregluþjón

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar