Nýtt rafrænt skápakerfi verður tekið í notkun í Ásgarðslaug í Garðabæ á næstunni og á að vera klárt að fullu í desember. Með þessu er meðal annars verið að bregðast við ítrekuðum kvörtunum bæjarbúa um að marga lykla vanti í skápana og að þeir séu þar með ónothæfir.