Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði í fyrradag með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Beijing. Hún var í opinberum erindagjörðum í Kína í vikunni.Í frétt á vef Stjórnarráðsins segir að Yi hafi verið heiðursgestur í móttöku í sendiráði Íslands þar sem 55 ára stjórnmálasambandi ríkjanna var fagnað.Þorgerður segir að fundur þeirra Yi hafi verið einstaklega góður og hreinskiptinn.„Fyrst og síðast var mikill vilji af beggja hálfu til þess að efla enn frekar tengslin, ekki síst á sviði viðskipta, menningar og lista,“ sagði Þorgerður í útvarpsfréttum í kvöld.Á viðskiptasviðinu segir Þorgerður að helst hafi verið ræddur sjávarútvegurinn og jarðhitaþekking Íslendinga. Á vef Stjórnarráðsins segir að orkusamstarf sé fyrirferðarmikið í samskiptum ríkjanna. Nærri hundrað kínverskir