Íbúar úkraínska bæjarins Oleshky eru loks komnir á öruggara svæði eftir margra mánaða umsátur Rússlandshers. Það var langþráð stund þegar fólk steig út úr rútunni í dag.Leiðin var líka löng því það er stórhættulegt og ófært með öllu að fara beint yfir víglínuna. Frá bænum sínum fóru þau með rútu til Anapa í Rússlandi. Þaðan var þeim flogið til Gomel í Belarús og komust þar loks upp í rútuna sem flutti þau yfir landamærin aftur til Úkraínu.Íbúar sem komust loks á brott frá bænum Oleshky í gær eru komnir á öruggara svæði í Úkraínu. Rússlandsher hafði setið um bæinn síðan í maí, og fólkið var farið að svelta.„Margt fólk er horfið. Mörg eru dáin. Sum stigu á jarðsprengjur. Borgin er stráð jarðsprengjum. Sum hverfi eru ekki til lengur,“ segir Valeriy Kupayev sem flúði Oleshky.Óljóst er hversu m