Vön mat úr skvísum og kunna ekki að borða með skeið

Svokallaðar skvísur fyrir börn uppfylla almennt ekki næringarviðmið. Næringarfræðingur segir mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um hvað þeir bjóða börnum sínum upp á og noti slíkar vörur í hófi. Dæmi séu um að leikskólabörn kunni ekki að borða með skeið þar sem þau eru vön að sjúga matinn úr skvísu. MEIRA EN HELMINGUR AF ÚRVALINU ERU SKVÍSUR OG FINGRAMATUR Næring úr barnamauki í skvísum og fingramat fyrir börn er ekki í samræmi við viðmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, samkvæmt nýrri rannsókn innan Háskóla Íslands. Birna Þórisdóttir, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild Háskólans, fór fyrir rannsókninni. Fyrstu niðurstöður benda til þess að engin tegund af skvísum eða fingramat uppfylli viðmiðin, einungis fjórðungur af barnamauki í krukkum, sem er selt á Íslandi, uppfylli
Vön mat úr skvísum og kunna ekki að borða með skeið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar