Virðast ætla að standa við stóru orðin um að gera vel við strandveiðiflotann

Formaður Landssambands smábátaeigenda segir ríkisstjórnina virðast ætla að standa við stóru orðin um að gera vel við strandveiðiflotann. Innviðaráðherra hefur óskað eftir umsögnum um áform um breytingu á lögum um byggðatengdar veiðiheimildir.Áformin sem innviðaráðherra birti í samráðsgátt eru ekki drög að frumvarpi heldur hugmyndir og því segir Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, erfitt að leggja mat á þau. Hann segir ráðherra hafa lofað góðu samráði.„Við verðum bara að sjá til en það virðist vera eins og þessi ríkisstjórn ætli bara að standa við sín loforð um að gera vel við strandveiðiflotann. 72,3% þjóðarinnar vilja bæta í strandveiðipottinn og þetta virðist bara vera ríkisstjórn sem skilur það og hlustar á það og ætlar að gera það,“ segir Kjartan.Þá segir han
Virðast ætla að standa við stóru orðin um að gera vel við strandveiðiflotann

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar