Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, segir engin áform um friðarviðræður við Bandaríkin þrátt fyrir vaxandi áhyggjur af því að átök brjótist út að nýju.Araghchi sagði í viðtali við fréttastofu Al Jazeera í dag að eins og staðan er núna séu allar vangaveltur um viðræður aðeins getgátur fjölmiðla.Við núverandi aðstæður sæi Íran enga ástæðu til að funda með Bandaríkjamönnum. Afstaða Írana væri skýr og milligönguaðilar héldu áfram samráði um skilyrði þeirra.Araghchi staðfesti að Íran hefði fengið bréf frá JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna, eftir nokkurra daga diplómatískar tilraunir til að koma í veg fyrir að átök hæfust á ný. SEGIR ENGA SUNDRUNGU Hann sagði að skilaboð Vance hefðu verið vandlega yfirfarin og rædd á fundum háttsettra embættismanna.Ef markmið Bandaríkjastjórnar með því