Samninganefnd sveitarfélaga hefur samþykkt tillöguna fyrir sitt leyti. Kennarar hafa til miðnættis að taka ákvörðun.Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sagði við fréttastofu að hann hafi boðað forsvarsmenn kennara og sveitarfélaga til fundar vegna sundurlyndis sem komið hefur fram í fjölmiðlum síðustu daga.Hann lagði fram tillögu með ákveðnum skilmálum um framhald þeirrar vegferðar sem kveðið er á um í kjarasamningum um virðismat á störfum kennara. Ástráður segir að tillagan sé í raun útfærsla á því sem fram kom í samningunum. Í tillögunni, segir hann, tekin af öll tvímæli um það hvernig vinnunni verður haldið áfram.Samþykki kennarar ekki tillöguna fyrir miðnætti þá tekur svokölluð forsendunefnd undir stjórn ríkissáttasemjara til starfa. Hefur hún nokkra mánuði til að koma sér saman um v