Samninganefndir Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga eru komnar til sáttasemjara. Á milli þeirra er ágreiningur um túlkun kjarasamninga.„Við erum komin í hús sáttasemjara. Hann boðaði okkur á fund í morgun og erum bara að gera okkur klár í að leysa verkefnið í dag,“ segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambandsins, skömmu fyrir hádegi.Deilan snýst um virðismat á kennarastarfinu sem kennarsambandið telur að hafi tafist.„Þetta er síðasti dagurinn til að framlengja því verkefni með þeim hætti sem við höfum óskað eftir. Við treystum því að það verði lausnin áður en dagurinn er úti,“ segir Magnús Þór.Tíminn er naumur, því náist ekki sátt um vinnuna um virðismatið fyrir miðnætti virkjast forsenduákvæði kjarasamningsins að mati Kennarasambandsins, þannig þau geti sagt