Þúsundasti íbúinn hrífst af náttúru og félagslífi

Þúsundasti íbúi Hörgársveitar segir mikla uppbyggingu og mikið líf í sveitarfélaginu. Sveitarfélagið fagnaði tímamótunum með því að heiðra 1000. og 1001. íbúann. Það voru þau Kristín Björk Gunnarsdóttir og Steingrímur Karlsson, eða Denni eins og hann er kallaður. Denni segist alltaf hafa sóst í náttúru nærri byggð.„Þetta er stutt frá Akureyri og allri þjónustu. Ég hef alltaf verið þannig; ég bjó á Austurlandi, var með óbyggðasetrið þar inni í afdölum og þegar ég bjó í Reykjavík var ég við Elliðavatn, þannig að maður svona sækir í náttúruna,“ segir Denni.„Það eru æðislegar lóðir hérna niðri við sjóinn, við sjáum ekki næsta hús, erum hérna inni í skógi. Þannig þetta er bara frábært hverfi hérna sem er að byggjast upp.“Denni og Kristín búa í Hagabyggð. Denni segir að íbúum fari þar ört fjölga
Þúsundasti íbúinn hrífst af náttúru og félagslífi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar