Engin fjölskyldumynd á G20-fundi í Atlanta

Úkraínuher fær að kaupa Patriot-varnarflaugar sem herinn hefur vantað frá Bandaríkjunum. Hefðbundinni myndatöku á fundi utanríkisráðherra G20-ríkjanna í Atlanta var slaufað því sumir vildu ekki vera með rússneskum kollega sínum á mynd.2,1 milljarður dollara, eða andvirði 250 milljarða íslenskra króna, það er upphæðin sem Úkraína þarf að reiða fram.Bandaríska utanríkisráðuneytið tilkynnti viðskiptin í gær og segir að þau muni auka öryggi vinaþjóðar sem stuðli að pólitískum og efnahagslegum stöðugleika í Evrópu.Kanada, Þýskaland, Noregur og Evrópusambandið ætla að aðstoða við greiðslu. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að afhending gæti tekið nokkur ár og biðlar til Bandaríkjanna um að liðka til og flýta ferlinu. VILJA EKKI VERA Á MYND MEÐ LAVROV Utanríkisráðherrar G20-ríkjanna e
Engin fjölskyldumynd á G20-fundi í Atlanta

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar