Þrátt fyrir að útlit sé fyrir eitt besta rekstrarár í sögu Síldarvinnslunnar (SVN) þá hefur verðmat á félaginu verið lækkað nokkuð, samkvæmt nýrri greiningu. Minni loðnuveiði á næsta ári, hækkandi fjármagnskostnaður og styrking krónunnar vega þungt í endurskoðuðu mati hlutabréfagreinenda.