Breytingar á Húsi málarans í Bankastræti 7a þurfa að fara í grenndarkynningu. Þetta er niðurstaða skipulagsfulltrúa Reykjavíkur en erindi vegna málsins var lagt fram á fundi skipulagsfulltrúa nýverið. Til stendur að rífa þriðju hæð hússins og endurbyggja hana.