Undirbúningur er hafinn að hinu árlega verkefni, Jól í skókassa, sem félagasamtökin KFUM og KFUK standa að. Um er að ræða alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir.