Guðmundar- og Geirfinnsmálið er sennilega þekktasta sakamálið í íslenskri nútímaréttarsögu. Þar var hópur ungs fólks dæmdur fyrir aðild að hvarfi Guðmundar og Geirfinns eftir að hafa setið langtímum saman í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsóknina.Gísli Guðjónsson, prófessor í réttarsálfræði, segir að mál Guðmundar og Geirfinns sé einstakt. Sú langa einangrun sem sakborningar máttu sæta sé nánast fordæmalaus og margt hafi verið undarlegt við rannsóknina. Þá hafi aðkoma þýska rannsóknarmannsins Carls Schultz verið skaðleg.Meðferðin á ungmennunum í þessu máli er ekki eina dæmið um harðræði og pyntingar í Síðumúlafangelsinu að sögn Tryggva Rúnars Brynjarssonar sagnfræðings. Í þáttaröðinni Betrun lýsir hann rannsókn sem var gerð 1976 af hálfu hins opinbera í kjölfar kvartana um hræðilegar lík