Innviðaráðuneytið hefur sett í samráðsgátt áform um endurskoðun á lögum um byggðakerfi sjávarútvegsins. Stefnt er að því að vinna tvö aðskilin frumvörp um úrræði sem áður heyrðu til sömu laga um byggðatengdar veiðiheimildir en ráðuneytið kallar eftir umsögnum áður en gengið verður frá frumvarpsdrögum.Miðað við það sem fram kemur um áætlanir ráðuneytisins í samráðsgáttinni verða strandveiðar teknar út fyrir sviga með sér frumvarpi. Hitt frumvarpið mun fjalla um breytingar á öðrum úrræðum innan 5,3% kerfisins svonefnda, en það eru línuívilnun, skel- og rækjubætur og bæði almennur og sértækur byggðakvóti.Frumvarp um strandveiðar verður lagt fram á næstunni en frumvarp um önnur úrræði verður lagt fram eftir áramót. Hvað er byggðakerfi sjávarútvegs? Til að útskýra muninn á þessum ráðstöfunum í