Gervigreindarfyrirtæki auðvelda síðum að hafna vefsöfnun

OpenAI, Google, Microsoft og Anthropic lofuðu í gær að veita fjölmiðlum og öðrum vefsíðum eina aðgangsleið til að koma í veg fyrir að efni þeirra sé skrapað til að þjálfa gervigreindarlíkön.Fyrirtækin hafa verið harðlega gagnrýnd af fréttamiðlum og fleirum fyrir það gríðarlega magn texta sem þau sækja í leyfisleysi. Þau hafa einnig staðið í lagadeilum, en fjölmiðillinn New York Times er til að mynda einn þeirra sem hafa farið með mál fyrir dómstóla. VON Á BREYTINGUM Á NÆSTA ÁRI Eins og er þurfa vefstjórnendur að innleiða fjölda lokunarskipana fyrir hvert yrki, eða botta, sem skríður um vefinn til að safna gögnum.Nýja lausnin sem lögð er fram á að leyfa þeim að slá inn eina, staðlaða skipun sem öll gervigreindarfyrirtæki sem taka upp nýju reglurnar viðurkenna og virða.Microsoft segist æt
Gervigreindarfyrirtæki auðvelda síðum að hafna vefsöfnun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar