Dálítil lægð á Grænlandshafi og hæð vestur af Írlandi beina suðvestlægri átt til Íslands. Í dag verður kaldi eða stinningskaldi víða í dag og skúrir eða slydduél. Fyrir norðaustan og á Austurlandi verður hins vegar bjart að mestu.Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Hiti verður yfirleitt 1–7 stig og suðvestanátt 8–13 metrar á sekúndu.Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:Suðvestan og sunnan 5–13 á morgun og súld eða dálítil rigning með köflum. Lengst af þó þurrt um landið norðaustanvert. Hlýnar í veðri. Bætir í úrkomu vestantil annað kvöld.