Glæpamenn í barnavernd á Íslandi og í Noregi: „Það gildir bara mjög skýrt ákvæði“

Í Noregi í lok ágúst sögðu fjölmiðlar frá því að einstaklingar með tengsl við glæpaheiminn í landinu ynnu hjá eða stýrðu sextán barnaverndarfyrirtækjum á tilteknu svæði í Noregi. Fréttirnar vöktu mikla athygli í landinu. Þetta segir Ida Wangberg sem er einn af blaðamönnum norska blaðsins Klassekampen sem opinberaði þetta mál í lok ágúst á þessu ári.Ida segir allt útlit fyrir að þessar fréttir muni hafa mikil áhrif á þennan málaflokk í Noregi, að eftirlit með þess konar fyrirtækjum verði aukið og að norska ríkið muni í auknum mæli bjóða sjálft upp á þessa þjónustu í framtíðinni.Þessar fréttir frá Noregi tala inn í umræðu um einkarekin barnaverndarúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda sem nú á sér stað eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði um þess konar fyrirtæki nú á þriðjudagi
Glæpamenn í barnavernd á Íslandi og í Noregi: „Það gildir bara mjög skýrt ákvæði“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar