Björguðu 25 sjómönnum úr brennandi skipi

25 sjómönnum var bjargað úr brennandi olíuflutningaskipi á Hormússundi í gær eftir að skipið varð fyrir árás. Yfirvöld í Óman komu skipverjunum til bjargar.Skip í biðstöðu á HormússundiAP/ISNA / Amirhosein KhorgooiÍranski byltingarvörðurinn segir að skipið hafi slökkt á öllum siglinga- og staðsetningarbúnaði og reynt, með stuðningi bandaríska hersins, að sigla leið sem var þeim óheimil.Íran hefur skilgreint sérstaklega hvaða siglingarleiðir eru leyfilegar á sundinu. Annars staðar hafa þeir komið fyrir töluverðu magni tundurdufla, en siglingaleiðin sunnarlega í sundinu, nálægt ströndum Ómans, er lokuð.Ekki er vitað hvort eldurinn hafi kviknað af völdum tundurdufls eða beinnar árásar.
Björguðu 25 sjómönnum úr brennandi skipi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar