Það er merkilegt við stjórnmálin að stjórnmálamenn eru oftast dæmdir af því sem þeir gera, en sjaldnast af því sem aldrei varð á þeirra vakt. Ráðherrar klippa á borða, vígja mannvirki, kynna áætlanir og telja upp afrek sín. En hver ber ábyrgð á verksmiðjunni sem aldrei reis?