Fagfólk úr lögreglu, barnavernd, skólum og heilbrigðisþjónustu hefur nú fengið þjálfun í að meta hættu á heiðursofbeldi. Námskeiðið var hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Annars staðar á Norðurlöndum hafa heiðurstengd átök ítrekað endað með morði.