Eftirminnilegur er mér hann Eggert. Við vorum bekkjarbræður í menntaskóla. Máladeildin var okkar deild og þar brilleraði Eggert. Annan eins málamann hef ég sjaldan hitt. Hann náði valdi á erlendum tungumálum fljótar og betur en aðrir, en ekki nóg með það því að stærðfræðin lá líka vel fyrir honum.