Íbúar Hörgársveitar orðnir fleiri en þúsund

Íbúar Hörgársveitar hafa rofið fjögurra talna múrinn en nú búa þar fleiri en þúsund manns. Sveitarfélagið greinir frá þessu í tilkynningu.Íbúum í Hörgársveit hefur fjölgað um 83% á síðasta áratug en árið tvö þúsund og sextán bjuggu þar 547 manns.Af þessu tilefni veitti sveitarfélagið íbúum númer 1000 og 1001 sérstakt viðurkenningarskjal í dag til að marka tímamótin. Það eru hjónin Kristín Björk Gunnarsdóttir og Steingrímur Karlsson sem fleyttu sveitarfélaginu yfir þennan áfanga. LÍF Í GÖMLU SÍLDARVERKSMIÐJUNNI Sveitarfélagið Hörgársveit varð til árið tvö þúsund og tíu við sameiningu Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps en helstu þéttbýliskjarnarnir eru Hjalteyri og Lónsbakki sem er nálægt bæjarmörkum Akureyrar.Á Hjalteyri var eitt sinn stærsta síldarverksmiðja Evrópu. Hún var reist árið 1937
Íbúar Hörgársveitar orðnir fleiri en þúsund

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar