Íbúar ósammála um ágæti vindorkuvers

Íbúar í Norðurþingi eru ósammála um fyrirhugað vindorkuver að Hnotasteini. Framkvæmdaraðilar lofa sveitarfélaginu tekjum og íbúum störfum.Franska fyrirtækið Qair stóð fyrir opnum kynningarfundi á vindorkuveri á Hnotasteini á Raufarhöfn í dag og á Kópaskeri í gær. Fundirnir voru vel sóttir og stóðu í þrjá og fjóra tíma. Íbúum stendur greinilega ekki á sama hvort vindorkugarður rísi á Hólaheiði.Hart var tekist á á kynningarfundi um vindorkuver að Hnotasteini í Norðurþingi í dag. Íbúar hafa skiptar skoðanir og óska eftir hlutlausum íbúafundi án aðkomu fyrirtækisins sem áformar uppbygginguna.Halldóra Gunnarsdóttir, verkefnastjóri ferðaþjónustufyrirtækisins Norðurhjara, telur að sífellt fleiri séu á móti vindorkuverinu.„Ég held að það séu fleiri og fleiri að verða móti þessu þegar þeir gera sér
Íbúar ósammála um ágæti vindorkuvers

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar