Starfsfólk og stjórnendur Sorpu eru slegin yfir því að köttur hafi lent í gildru á starfssvæði fyrirtækisins með þeim afleiðingum að fjarlægja þurfti fót. Gildran hafi verið hluti af meindýravörnum og Sorpa talið að þetta gæti ekki gerst. Búið sé að segja upp verksamningi við meindýraeyði sem bar ábyrgð á gildrunni.