Hildur Björnsdóttir borgarstjóri hefur sent samstarfsaðilum og birgjum Reykjavíkurborgar áskorun um að sýna aðhald í verðlagningu á komandi misserum.„Við lögðum áherslu á það hjá Reykjavíkurborg eins og önnur sveitarfélög að halda gjaldskrám okkar í hófi á næsta ári og að þær myndu ekki hækka umfram 2,5%. Við erum þarna að skora á okkar samstarfsaðila að tryggja að þeirra gjaldskrárhækkanir gagnvart borginni verði sambærilegar,“ segir Hildur.Hildur segir að fleiri sveitarfélög hafi sent sams konar áskoranir á sína samstarfsaðila og birgja.Í bréfinu segir að þótt hver og einn taki ákvarðanir út frá eigin rekstrarforsendum telji borgaryfirvöld að sameiginlegt átak geti skipt verulegu máli fyrir verðstöðugleika, hag heimila og fyrirtækja og fjárhag hins opinbera.Hildur segir bréfið líka lið í