Bæjarstjórn sveitarfélagsins Stykkishólms samþykkti í gær tillögu forseta bæjarstjórnar um tímabundnar launalækkanir kjörinna fulltrúa.Laun bæjarfulltrúa eiga að lækka um 50% á næsta ári en laun forseta bæjarstjórnar um 80%.Launalækkunin á að taka gildi í upphafi næsta árs og gilda út 2027. Þá var lögð fram viðbótartillaga um aukið aðhald í rekstri. Þetta á að skila 80–100 milljóna króna afkomubata.Skessuhorn greindi fyrst frá.Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir þetta lið í því að rétta lið A-hlutans. „Þannig við verðum alltaf á grænu varðandi þessar kennitölur.“ Samstæðan í heild segir hann að sé þó í lagi.„Þessi aðgerð snýst ekki um að rífa í einhverja handbremsu. Það er ekkert neyðarástand. Við erum að halda áfram að hagræða og finna leiðir til að ná