Hótunum í garð lögreglumanna hefur fjölgað síðustu árin en virðast þó hafa litlar sem engar afleiðingar í för með sér. Lögreglumenn eru margir reiðir út í ákæruvaldið og dómstóla, og upplifa að þeir fái enga réttarvernd í sínu starfi. Margir eru komnir með öryggismyndavélar fyrir utan heimili sín.Þetta segir Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, í Síðdegisútvarpinu.Ríflega helmingur lögreglufólks hefur orðið fyrir ofbeldi eða hótunum í sínu starfi á síðustu fimm árum. Fjölnir segir þetta vera viðvarandi vandamál.„Við erum mjög víða með menn sem veifa bara plöggum framan í okkur eftir að hafa verið kærðir fyrir að ráðast á lögreglumenn vegna þess að þetta hafði engar afleiðingar, þetta var bara fellt niður.“Reiði ríkir innan lögreglunnar yfir því hvernig tekið er á hótun