Christa Pike hefur tjáð sig opinberlega í fyrsta skipti síðan hún 30. september lifði af tvær líflátstilraunir á dauðadeild fangelsins í bandaríska ríkinu Tennessee. Nokkrir bandarískir miðlar hafa eftir Pike að hún finni fyrir miklum kvölum um allan líkamann og eigi erfitt um mál.Sársaukinn sé ekki aðeins líkamlegur heldur nísti hann huga hennar og sál. Pike kennir vanhæfni um að aftakan mistókst og segist hafa verið reiðubúin til að deyja. Þess í stað hafi hún vaknað ein og ráðvillt á sjúkrabeði.Pike var dæmd til dauða fyrir að myrða hina nítján ára Colleen Slemmer fyrir rúmum 30 árum, þegar hún sjálf var 18 ára.Sautján ára kærasti Pike var dæmdur í lífstíðarfangelsi með möguleika á skilorði fyrir aðild að morðinu. Pike segist einnig kvalin af sektarkennd gagnvart þeirri sorg og sársauka