Gögn um kaup Ása á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum bentu að frummati Samkeppniseftirlitsins til þess að sameinað félag myndi hafa bæði hvata og getu til að beita útilokandi háttsemi gagnvart keppinautum. Kaupin gætu jafnframt aukið hindranir á innkomu nýrra fyrirtækja og vexti þeirra sem þegar væru á markaði.