Hálfsextugur karlmaður var handtekinn í gær meðan á vígsluathöfn nýja alþjóðaflugvallarins við grænlenska bæinn Ilulissat stóð.Danska ríkisútvarpið segir tollverði hafa fundið um hálft kíló af hassi í föggum mannsins sem kom með fyrsta flugi Air Greenland frá Kaupmannahöfn þar sem Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnarinnar, og utanríkisráðherrann Múte B. Egede voru meðal farþega.Tollurinn tilkynnti lögreglu um málið í hádeginu, sem handtók manninn skömmu síðar, meðan vígsluathöfnin stóð sem hæst. Smyglaranum var sleppt skömmu síðar og lögregla segir hans bíða ákæra að rannsókn lokinni. Flugvöllurinn markar tímamót í ferðalögum til Grænlands og opnar nýjar leiðir fyrir ferðalanga sem vilja sækja landið heim.Rúmlega tveggja kílómetra flugbraut leysir 845 metra braut af hólmi sem auðv