Boðið upp á bólu­setningar í apó­tekum í fyrsta sinn

Nú verður hægt að fá bólusetningu við inflúensu í apótekum. Í tilkynningu frá Sjúkratryggingum segir að nýr samningur við apótek um lyfjafræðilega þjónustu marki tímamót í aðgengi almennings að heilbrigðisþjónustu. Alma Möller heilbrigðisráðherra og Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, voru meðal þeirra fyrstu sem nýttu sér þjónustuna og fengu inflúensubólusetningu í ÍslandsApóteki í hádeginu dag.
Boðið upp á bólu­setningar í apó­tekum í fyrsta sinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar