Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að gagnrýni Harðar Arnarsonar, fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar, á Samkeppniseftirlitið veki upp spurningar.Hörður hvetur til þess í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag að fyrirkomulag samkeppniseftirlits verði endurskoðað. Hann vill að aðskilnaður rannsóknar, málsóknar og ákvörðunar um brot verði skýrður betur. Tilefnið er ákvörðun áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem felldi úr gildi 1,4 milljarða króna sekt á fyrirtækið.„En það er alltaf tilefni til endurskoðunar og ég er með slíkt mál á þingmálaskrá í vetur, að skerpa fókusinn þegar kemur að samkeppnislögum og líka með mál sem varða endurskoðun og breytingar á stofnanaumgjörðinni,“ segir Hanna Katrín.„Þannig að án þess að þetta sé beintengt þá er málið þannig að með þessar valdheimil