Formaður ME-félagsins á Íslandi segir nýja skýrslu landlæknis veita von. Það geti beinlínis verið hættulegt að meðhöndla sjúkdóminn rangt.Í nýrri skýrslu vinnuhóps sem var skipaður af landlækni í fyrra að beiðni heilbrigðisráðherra er meðal annars lagt til að ME verði skilgreindur sem alvarlegur krónískur taugasjúkdómur þar sem hefðbundin endurhæfing á ekki við.Vinnuhópnum var falið að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu við einstaklinga sem glíma við sjúkdóma og heilkenni sem kennd eru við ME, POTS og langvinnt COVID-19. Þá bættust umhverfissjúkdómar við á meðan á vinnu hópsins stóð, en þar er til að mynda átt við veikindi af völdum myglu.Það var niðurstaða skýrslunnar að þörf væri á fræðslu innan heilbrigðisþjónustunnar um þessa sjúkdóma. Þá er einnig lagt til að fjármögnun rannsó