Íbúar Árneshrepps borga sama kílómetragjald og aðrir Íslendingar. Engu að síður er þjónusta Vegagerðarinnar umtalsvert minni í sveitarfélaginu heldur en annars staðar á landinu.Nú er vegurinn kominn í vetrarþjónustu sem þýðir að Vegagerðin heldur ekki úti reglulegu eftirliti með veginum og litlar upplýsingar er að fá um ástand hans og færð á umferdin.is.Sveitarfélagið segir akstursskilyrði mjög varhugaverð og efast um að vegurinn standist öryggiskröfur. Ástandið sé óviðunandi, sérstaklega í ljósi þess að grunnskólabörn eru keyrð til Hólmavíkur einu sinni í viku.„Ég leyfi mér að efast að þetta standist skoðun þegar horft er til jafnaðarreglunnar, að það sé borgað jafn mikið fyrir notkun á þessum vegi og annars staðar á landinu,“ segir Héðinn Birnir Ásbjörnsson, sem á sæti í samgöngunefnd Ár