Uppsagnir alltaf áhyggjuefni

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir uppsagnir hjá ríkisstofnunum vera vegna hagræðingarkröfu stjórnvalda. Hann segir þó áhyggjuefni hve hið opinbera hefur sagt mörgum upp.„Þetta er auðvitað alltaf áhyggjuefni og sýnir að það hefur verið að hægja á vinnumarkaði. Atvinnuleysi er að vísu ennþá hóflegt en við þurfum að fylgjast áfram náið með þessu.“ FJÖLGUN FYRST OG FREMST HJÁ SVEITARFÉLÖGUM Greint hefur verið frá fækkun yfir 100 stöðugilda hjá hinu opinbera í vikunni.Fimmtíu starfsmenn Reykjavíkurborgar fengu uppsagnarbréf á þriðjudag. Frá því að nýr meirihluti tók við hefur um 130 stöðugildum verið fækkað. Í Ráðhúsi Hafnarfjarðar verða 23 störf lögð niður en þrír fengu boð um annað starf. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar sagði í vikunni að þetta hefði verið nauðsynlegt
Uppsagnir alltaf áhyggjuefni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar