Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir eðlilegt að þjónusta vínbúðanna þróist í takt við samfélagið þegar hann er spurður um áform ríkisins um heimsendingu á áfengi. Hans skoðanir á því hvort gera eigi verslun með áfengi frjálsa skipti litlu máli þar sem skiptar skoðanir eru á málinu í ríkisstjórninni.