Samkaup hefur verið dæmt til að greiða rúmar 82 milljónir króna í bætur til fyrirtækisins Netgengisins, sem rekur aha.is. Höfðu fyrirtækin gert samning um netsölu Nettó, sem er í eigu Samkaupa, á vefsvæðinu aha.is en Nettó opnaði síðan eigin netverslun.