Karlmaður sem nauðgaði gestkomandi vinkonu sinni eftir þorrablót var í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi. Landsréttur staðfesti dóm Norðurlands eystra yfir manninum.Konan og fleira fólk var gestkomandi hjá manninum eftir þorrablót. Um nóttina vaknaði konan við að maður væri kominn upp í rúm til hennar og reyndi að hafa við hana endaþarmsmök. Hún kom sér undan en maðurinn reyndi aftur. Maðurinn neitaði sök en dómara við Héraðsdóm Austurlands og dómurum við Landsrétt þótti sannað að hann hefði brotið gegn konunni. Maðurinn sagðist ekkert muna eftir því sem gerðist um nóttina en ekki trúa því að hann hefði brotið af sér.Vitnisburður konunnar og annarra vitna auk niðurstaðna læknisskoðana voru sönnun þess að maðurinn hefði nauðgað henni, að mati dómaranna. Maðurinn var dæmdur til tveggja ára f