Krefst viðbragða við sambandsleysi á Vestfjörðum

Fjórðungsþing Vestfirðinga lýsir þungum áhyggjum af ófullnægjandi fjarskiptasambandi á Vestfjörðum. Víða sé farsíma- og gagnasamband ótryggt eða ekkert og dæmi séu um að staðan hafi versnað eftir lokun 3G-þjónustu.Í ályktun þingsins segir að þrátt fyrir ítrekuð vilyrði um úrbætur og fyrri ályktanir hafi lítið áunnist. Sambandsleysi sé alvarlegt öryggismál, einkum ef kalla þurfi eftir neyðaraðstoð, og geti tafið viðbrögð við slysum og öðrum neyðartilvikum.Þingið krefst þess að stjórnvöld bregðist við án frekari tafar við stöðunni, tryggi fullnægjandi farsíma- og neyðarsamband á Vestfjörðum og leggi fram skýra og tímasetta áætlun um nauðsynlegar úrbætur.
Krefst viðbragða við sambandsleysi á Vestfjörðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar