Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar ekki að mæta í eigin persónu á fleiri kosningafundi Repúblikanaflokksins eftir kvöldið í kvöld, heldur ætlar hann að ávarpa mannfjöldann gegnum fjarfundarbúnað.Með þessu er talið að flokkurinn vilji freista þess að ná til fleiri kjósenda síðustu sólarhringana fyrir þingkosningar á þriðjudag en með því að forsetinn þeytist milli fundarstaða.Trump hyggst þó ávarpa kosningasamkomu á Daytona-strönd í Flórída í kvöld. Forsetinn hóf mikla yfirferð um landið snemma í október með það markmið að auka möguleika á sigri Repúblikana í kosningunum.Bandarískir miðlar segja að löng ferðalög og mikil ræðuhöld séu tekin að taka sinn toll af heilsu forsetans sem varð áttræður í sumar.Meðal annars hefur hann mismælt sig talsvert, gefið frá sér undarleg hljóð og röddin orð