Hjörtur Magni Jóhannsson prestur Fríkirkjunnar segir ofstækisfullar sértrúarskoðanir á borð við skoðanir pakistanska trúarleiðtogans Muhammad Taqi Usmani vera eitur. Hann segir að ekki eigi að hleypa talsmönnum slíkra ofstækisskoðana inn í landið og segir þær að finna í öllum helstu trúarbrögðum. Í kjarnaboðskap trúarbragðanna sé að finna samhygð, náungakærleika og umburðarlyndi en ofstækið og blind bókstafstrú sé mikill skaðvaldur innan allra trúarhefðanna.