Skiptum er lokið á þrotabúi félagsins Legendary SPV Hella ehf., sem var í eigu Lettans Dmitrijs Stals. Félagið hét áður Hótel Hella ehf., en félag Stals keypti Hótel Hellu árið 2023 og stefndi á að umbreyta því í fjögurra stjörnu hótel með 68 herbergjum. Stals hafði háleit markmið um að reka tólf hótel hér á landi en kröfur í bú sex fyrirtækja hans nema alls rúmlega 1,1 milljarði króna.