Kröftugur vöxtur vaxtatekna Íslandsbanka á þriðja ársfjórðungi dugði ekki til að skila afkomu í samræmi við væntingar markaðarins, einkum vegna meiri rekstrarkostnaðar og virðisrýrnunar útlána. Greinendur telja uppgjörið engu að síður gott og benda á sterkan vöxt kjarnatekna.